|
|
24.11.2007 02:43:21 / Sigga
Jæja þá kom að því, fyrsta afsprengi 84 árgangsins er komið í þennan heim. Það var hann Bjarki sem átti heiðurinn af því, lítil rauðhærð stúlka kom í heiminn þann 22.nóvember. Gangi þér vel í spánýju hlutverki, trúlega ertu nú þegar búinn að sýna henni hvernig bílar líta út  
»
04.06.2007 09:37:03 / Gudfinna
Einhver sem býður sig fram í að plana gott mót eins og í fyrra
?
eftir einhvern x tíma ?
»
09.09.2006 12:00:10 / Gudfinna
Grunnskólinn
Ég var að keyra Brynjar bróðir á
íþróttaæfingu í gær, og þegar ég var að fara að taka beyjuna til
hægri aftur heim í Brúnahlíð, þá datt mér í hug að snúa við að
keyra skólahringinn svona í ganni, bara svona til að sjá hvernig
allt liti út.
Þegar ég gerði það birtust mér fjöldinn allur af
ljóslifandi minningum. Misgóðum auðvitað, missskemmtilegum, með
misskemmtilegu fólki,svona eins og gerist bara.
Ég sá mig skreppa í heimsókn til Önnu Birtu í
frímínótum. Ég sá Dagbjörtu fyrir mér keyra í bílnum sínum í
skólann, jafnvel þótt hún ætti heima svona 9-10 metra frá skólanum.
Ég sá síðan þegar ég keyrði lengra glitta í róluvöllinn, þar sá ég
fyrir mér okkur stelpurnar vera í allskonar leikjum,róla okkur,
halda leynifundi undir einu leiktækinu, týna blóm undir gluggunum á
kennslustofunni.Svo má auðvitað ekki gleyma atriðinu þegar við
vorum að reyna að gera eins og Ester, þegar hún lék Andrés Önd.
Ester var að reyna að kenna okkur hinum hvernig við ættum að gera
hljóðin, með öllu tilheyrandi, slefskvettum, hávaða, og hreyfingum,
svosem ekkert frásögufærandi nema að einn kennarinn náði þessu öllu
á teip og vorum við alveg einstaklega þægar í tímum hjá henni
framvegis eftir það! Sú hét Elín. Svo keyrði ég lengra og sá þá
staðinn sem rúturnar stoppuðu á daginn til að hleypa okkur út á
morgnana í skólann og seinna um daginn til að ná í okkur. Ég var
alltaf síðust í rútuna, fannst stundum svo leiðinlegt að kveðja
fólkið þannig við töfðum oft fyrir og vorum ekki tilbúin að fara.
Síðan kom mötuneytið, úff þar var nú oft gaman. Og ófáir brandarar
gerðust þar
Æi já í allan dag hef ég svo ekki getað
hætt að hugsa um Hafralæk. Skrítið þar sem ég bjóst aldrei við að
hugsa til þessa skóla aftur. Ég á svoo slæmar minningar þaðan, en
svo í dag hellast þessar góðu gömlu yfir mig. Ég rifjaði upp
kennarana mína gömlu.
-
Ég sá Fíu með okkur í göngutúr meðfram áni til að
sína okkur fuglalífið og segja okkur hvað hver fugl héti og í
leiðinni sína okkur og kynna okkur fyrir ýmiskonar
plöntum.
-
Við í göngutúrum út um allt(ég þoldi það
ekki)
-
Mömmu Andreu fyrir mér kenna dóttur sinni
ásamt hinum í bekknum kynfræðslu. Bjarna kennara gera ýmsar kúnstir
til að við mundum hlægja af honum, einu sinni tróð hann plöntu í
eyrun á sér.
-
Gunnu að kenna okkur ýmislegt, að halda ræður, æfa
raddböndin og andlitið með ýmis konar hallærislegum munngrettur og
teygjum.
Ég hlakkaði svo til að komast úr skólanum og komast
í frjálsara umhverfi þar sem ég gæti ráðið hvort ég mundi koma með
tyggjópakka í skólann, eða hvort ég mundi vilja fá mér svala á
daginn án þess að ég yrði skömmuð. Þar sem ég gæti ráðið hvort ég
færi út á daginn eða hvort ég færi í sund eða ekki. Svona eftir
á...æii var þetta ekki bara alveg ágætt...
Sjáumst eftir svona 3-5 ár krakkar...
Guðfinna Árnadóttir.
»
28.07.2006 13:42:18 / Gudfinna
Ohh vitiði þessa síða og ég erum ekki vinir, ég get ekki gert
tengil og sett myndirnar mínar þannig inn....Þannig ég lét tengil í
comment í færslunni hérna fyrir neðan, þið verðið bara að copy
paste...Endilega reynið samt að koma myndunum ykkar inn, ef þið
tókuð einhverjar.
Svo er spurning hvort að við höldum aftur endurfund? Og vill
einhver bjóða sig fram, ef ekki , þá mæli ég með að við úr gömlu
nefndinni viljum öll bara einn til að taka við af okkur...?
En í lokin þakka ég öllum sem komu, hefðu mátt vera fleiri, en hey
þið komið þá bara næst þið sem ekki komuð núna, sérstaklega eftir
að þið fréttið hvað það var gaman síðast
Bestu kveðjur. Guðfinna
»
20.07.2006 23:46:37 / Sigga
jæja bara einn og hálfur sólarhringur þangað til að við
hittumst!!!
Þetta verður þrusustuð enda erum við bara skemmtileg!!!!!
ætla bara að minna alla á að koma með pening, sundföt, grillmat,
alkohól, góða skapið, húmor í því að grípa gömul myndaalbúm og
fleira skemmtilegt!!!!
Ef einhvern langar til að vera með eitthvað sprell þá er það
velkomið!!!!!!!!
Það eru flest allir að koma, einstaka svartir sauðir sem eru í
vinnunni eða finnst við leiðinleg  en það verður fjör
engu að síður!!!!!
Hlökkum til að hitta alla aftur og breytast í gelgjur einn
dag!!!!
Hittumst á laugardaginn...........
»
30.06.2006 21:38:57 / Sigga
jæja þá fer að styttast í stuðið
22 júlí 2006
- mæting í HAFRAlækjarSkóla kl 14:30
- makar sem þora mega láta sjá sig í grilli um 19:30 í
SumarBúðunum
Það sem skal með takast: -sundföt -grillmat -bús -1000 kr
(kostnaður..)
Koma síðan klædd eftir veðri........ og að sjálfsögðu með
hlaupaskóna...........
ef fólk ætlar að gista kostar það 1000 kr...svefnpokapláss í
koju.....
Annars verður bara stuð stuð stuð....... nánari dagskrá kemur
síðar meir.....nema við gerum þetta bara að óvissuferð!!!! MÆtingin
stefnir í að verða mögnuð!!!!!!
»
30.05.2006 14:38:48 / Gudfinna
Við vorum að spá í að byrja daginn á að fara í Hafralæk, labba um
skólann , skoða svæðið, fara í leiki, þjappa hópnum saman, frjálst
val um hvort verði byrjað að drekka þar eða beðið þangað til við
komum í sumarbúðirnar...
Síðan vorum við að spá í að fara í tónlistarstofuna og horfa á
myndband sem einhver úr nefndinni verður vonandi búin að
klippa....
Síðan stakk ég upp á að fara í spurningarleik, nema að hann væri
þannig að við mundum skipta í lið, þetta yrði svipað og gettu
betur, eða staðsett yrði bjalla sem þurfti að hlaupa að og dingla
til að fá svarréttinn, nema að spurningarnar yrði úr
Hafralæk, þ.e.a.s gömlum stundum úr hafralæk, og gá hvað fólkið man
frá Hafralæk...
síðan sagði tóti, jaa munum við eitthvað frá hafralæk??
síðan kom löng þögn, og ég held að allir hafi verið að rifja upp
gamlar stundir, þær eru nefnilega heilmargar, og margar
skemmtilegar..
Síðan bara hellst að hafa þennan dag sem flippaðastan, bjór, gamlar
sögur, leikir, tjald, bátar, söngur, hljómsveit, grillveisla
...
eru fleiri en ég orðnir
spenntir ?
»
26.05.2006 23:26:11 / Sigga
22 júlí 2006
það væri frábært að fá að vita hvort að fólk vill
gista-tjalda-eða hyggst fara heim eftir djammið........ við erum
með sumarbúðirnar á leigu og fólk getur því fengið að gista...þarf
samt að láta vita vegna herbergjafjöldans........
..........................................................................hlökkum
til að sjá ykkur..............
nefndin þar sem tóti fékk að tala í tvær
mín............
»
18.04.2006 14:22:52 / Gudfinna
22 júlí....Hljómsveitin hans Arnars ætlar að spila nokkur lög fyrir
okkur og halda uppi stuði
Mæli með því að við "nefndin" hittumst bráðlega og vinnum í að gera
stutt myndband úr sólunum og svona, eða finna smá skemmtidagskrá
eða eitthvað fyrir kvöldið
Eru margir búnir að skrá sig í sumar Sigga?!
»
06.04.2006 22:21:24 / Sigga
well kids
til að fyrirbyggja allan miskilning og fýlu og fleira 
þegar við í nefndinni tókum ákvörðum hverjum væri "boðið" og
hverjum ekki var ekki verið að mismuna fólki Ef einhver telur
sig hafa orðið út undan þá er honum velkomið að hafa samband og
minna á sig. Það er nú bara einu sinni þannig að heill haugur af
fólki hefur dvalið með okkur í styttri eða lengri tíma og við
einfaldlega sáum ekki ástæðu til að bjóða fólki sem hefur ekki
sambandi við gamla bekkjarfélaga og/eða stoppaði stutt!!! og síðan
er árbótarliðið mest allt í steininum Þannig að við
bjuggum til einfalda "reglu" til að sama gengi yfir alla.
En ef þig langar til að hitta okkur gömlu bekkjarfélagana þá er
þér velkomið að hafa samband og vera sett/ur á póstlista.
anyway þá á þetta að vera gleði en ekki grátur minni þá sem
eiga eftir að skrá sig að drífa í því til að auðvelda skipulagningu
fyrir okkur
»
27.03.2006 22:44:52 / Gudfinna
Heil og sæl!
Í síðustu skoðunarkönnun var orðið 50% á móti 50% að hafa enga maka og
bara síðla um kvöld, þess vegna breytti ég könnuni bara í þessa
möguleika og hvet alla til að kjósa, og þá líka bara einu
sinni.
Sigga er að ofsækja
Bob greyjið, hringir heim
til hans og Juliet segir
alltaf það sama við Siggu, að hann Bob sé lasinn, en málið er að fá
nokkrar spólur í láni til að skoða leikrit eða tónverk og annað
misskemmtilegt frá Hafralæk.
Svo er eitt, veit Ástþór af þessari síðu ? humm
En engu að síður ætlaði ég að benda fólki að skrifa hérna inn,
gerið comment ef þið eruð ekki viss með notendanafn og lykilorð,
sigga reddar því þá strax.
Og minni aftur á að Sigga
er farin að taka við pöntunum!
-Guðfinna-
»
16.03.2006 22:19:59 / Sigga
yo yo yo þá er komið að því sem allir hafa beðið eftir!!!!!!
skráning er hafin: sendu mail á siggamannsa@simnet.is og láttu
vita hvort þú munt mæta með þinn fagra rass á bekkjarmót þann 22
júlí 2006! skráning þessi er 78% bindandi upp á að við endanlega
staðfestum pláss í sumarbúðunum sem verður ekki gert ef örfáir ætla
að mæta. þá verður nú bara boðið í kakó og kleinur í stofunni hjá
mannsa........ já partýin í fagranesi......hm anyway látiði mig
líka vita ef þið ætlið ekki að koma til þess að ég viti að allir
viti en séu ekki út undan (náðuði þessu?)!! segjum þetta gott í
bili
ykkar klikkaða sigga
»
07.03.2006 18:33:32 / Sigga
jæja smá breytingar í gangi. það er sem sagt komið í ljós að
eina helgin sem við getum fengið sumarbúðirnar er 21-23 júlí þannig
að stefnan er tekin á 22 júlí.......vúhú!!!
»
06.03.2006 21:49:46 / Gudfinna
hæhæ
í bígerð er að halda bekkjarmót fyrir árganga 83-85 í Hafralæk í sumar.
Þrjár helgar koma aðallega til greina og er búið að setja skoðanakönnun um
það inn Hér eftir verða líka allar upplýsingar settar inn á síðuna.
Planið er að hittast í hafralækjarskóla, fara um skólann og rifja upp gamlar
minningar! síðan yrði haldið vonandi í sumarbúðirnar við vestmannsvatn þar
sem yrði grillað og djammað fram eftir nóttu! þar yrði hægt að gista í
svefnpokaplássi eða tjalda! Í sumarbúðunum er fín djammaðstaða; pottur,
grill, bátar ofl....
Kostnaður er ennþá óljós en verður haldið í lágmarki.
Makar verða velkomnir síðla kvölds en börn eru vinsamlegast afþökkuð.
Nánari upplýsingar þegar nær dregur:
kveðjur
Sigga, Sigurdís, Guðfinna og Tóti sem fær ekki að tala.
»
01.03.2006 21:28:24 / Sigga
jæja, skellti inn líka svona skemmtilegri skoðanakönnun fyrir
ykkur. Endilega látið í ykkur heyra um hvenær hittingur hentar
ykkur best!
tralalalala
»
Síður: 1 2
|
|